Vatnasvæði Lýsu, Snæfellsnesi
Almennar upplýsingar
Fjölskylduparadís með góðri laxavon síðsumars.
Vatnasvæði Lýsu er frábær silungsveiðikostur á Sunnanverðu Snæfellsnesi og í bestu árum hafa veiðst hátt í 200 laxar á sumri.
Fyrri hluti sumars veiðist mest af bleikju og urriða en þegar líður á júlí er töluverð laxavon á svæðinu. Á haustin bætist svo sjóbirtingurinn við og er svæðið einna mest spennandi seinni hluta sumars. Þetta er frábær og ódýr kostur fyrir veiðifólk á einum fegursta stað landsins.
Það er mikill fiskur í vötnunum en veiðin er bæði upp og niður eftir veðri og vindum. Laxinn er yfirleitt smálax en allt að 19 punda fiskar hafa veiðst og silungurinn er aðallega frá 400 gr -1.000 gr.
ATH! Öllum laxi skal sleppt
Við biðjum veiðifólk að virða daglegan veiðitíma og virða veiðihlé sem er á milli 13-15
Bóka veiðileyfi
Það eru engin dagbókaratriði ennþá.
Leiðarlýsing og veiðisvæði
Gisting
Margir gistimöguleikar eru á svæðinu. T.d. Vatnsholt, Kast Guesthouse, Hótel Búðir, Hellnar og fl.
Leiðsögn
Magnús Antonsson ólst upp á Vatnasvæði Lýsu og þekkir svæðið manna best. Hægt er að bóka hann sem leiðsögumann ef haft er samband tímanlega.
Vinsælar flugur
Á vorin: hefðbundnar púpur og straumflugur
Á sumrin, litlar laxaflugur og hefðbundnar púpur og straumflugur fyrir sjóbirtinginn.
Hentug veiðitæki
Nettar einhendur með flotlínu
Staðsetning
Snæfellsnes sunnanvert.
Fjöldi stanga
6 stangir.
Leyfilegt agn
Fluga og spúnn. Maðkveiði og beita stranglega bönnuð.
Kvóti
Ekki eru takmarkanir á silungsveiði en öllum laxi skal sleppt.
Veiðitímabil
1. júní - 20. sept
Daglegur veiðitími
7:00-13:00 og 16:00-22:00 Frá 20. ágúst 07:00-13:00 og 15:00-21:00
Veiðivarsla
Sigrún Katrín 8987086 og Þór Fannberg 8958987
Skráning afla
Vinsamlegast skráið allan afla inn á anglingiq.com (app eða vefsíðu) Annars sendið yfirlit yfir veiðina á info@icelandoutfitters.com