Þjótandi í Þjórsá
Þjótandi í Þjórsá
Almennar upplýsingar
Þjórsá geymir einn stærsta villta laxastofn landsins og hefur laxveiði verið stunduð þar lengur en elstu menn muna.
Þjótandi, er tveggja stanga svæði, sem tekur við af Urriðafoss B svæði og nær frá efri brú eða gömlu brú og upp að landamerkjum þar sem Þjótandavegurinn endar. Hér er gríðalegur straumur í ánni og koma þónokkrir hyljir, pallar og hlé sem myndast við landið en laxinn leitar í hægara vatn meðfram landinu.
Hér eru bæði flottir flugu og maðkveiðistaðir.
Þjótandi er gömul netajörð og er gamall skúr á svæðinu til minja um netaveiðina. Hér veiðast laxar á stöng og við erum mjög spennt að sjá hvernig mun ganga í sumar. Helstu veiðistaðir eru Sog, Kvíslar, Húsabreiða, Skriðupollar og Gamla brú.
Bóka veiðileyfi
Það eru engin dagbókaratriði ennþá.
Leiðarlýsing og veiðisvæði
Veitt á 2 stangir, Þjótandi
veiðimenn bera ábyrgð á veiðisvæðaskiptingu en ávalt er veitt með 2 stöngum Þjótanda landi. Mælst er til að menn skipti á 3 klst fresti eða það sem menn geta sammælst um. Til þess að ákveða veiðisvæðaskiptingu hittast veiðimenn 6.45 á bílaplaninu við skúrin, séu menn ekki mættir kl. 6.55 hafa þeir sem eru mættir rétt til þess að velja sé það veiðisvæði sem þeir vilja byrja og svo skipta menn eftir 3 klst.
Þjórsá er stór og mikil og skulu menn hafavaran á og fara varlega. Áin er mjög hættuleg og er mælst til þess að fólk vaði hvorki, né taki aðra óþarfa áhættu. Veiðimenn eru á eigin ábyrgð við veiðar í Urriðafossi.
Við biðjum veiðimenn að umgangast áfengi með gát og ölvun á svæðinu er stranglega bönnuð því hún skapar hættu.
Vinsælar flugur
Allar helstu túbur fyrir jökulvatn eins og Snælda, Frances, þingeyingur ofl ofl. Stórar einkrækjur henta ágætlega því oft er svo mikið af laxi á svæðinu að þríkrækjur húkka í fiska.
Hentug veiðitæki
Vatnið í Þjórsá er jökulvatn og er allflesta daga litað en mismunandi mikið litað. Svo maðkveiði eða veiðar með t.d. túbu og sökku hentar mjög vel. Þá daga sem vatnið er fallegt á litin er einnig hægt að nota venjulegar flugur og útbúnað sem hentar þannig veiðum.
Gisting
Gisting fylgir ekki.
Fyrir þá sem vilja koma kvöldinu áður og gista er boðið upp á góða gistingu við bæinn Urriðafoss fyrir frekari upplýsingar um gistingu, hafið samband við: urridafossapartments@
Staðsetning
Kláfabreiða: 63.931322, -20.655428
Fjöldi stanga
2 stangir, seldar saman.
Leyfilegt agn
Veiða má á flugu, spún og maðk.
Kvóti
1. - 10. júní: 2 laxar á stöng á dag. 11. júní og út tímabilið: 5 laxar á stöng á dag. Mælst verður til að menn hlífi stórlaxi sé það mögulegt.
Veiðitímabil
1. júní - 15. sept
Daglegur veiðitími
1/6-10/8: 07:00-13:00 og 16:00-22:00. 11-31/8: 07:00-13:00 og 15:00-21:00. 1-15/9: 07:00-13:00 og 14:00-20:00.
Veiðivarsla
Skráning afla
Veiðibók er í kassa við bílastæði, vinsamlegast skráið allan afla.